Til stóð að taka vantrauststillögu Þórs Saari á dagskrá í dag. Það vill Þór ekki sætta sig við, enda sé það ekki í samræmi við þingsköp. Hann hefur því ákveðið að draga vantrauststillöguna til baka.

Tilkynning Þórs í heild sinni:

„Forystumenn stjórnaflokkana hafa tilkynnt mér um kröfu sína um að vantrauststillaga mín verði tekin á dagskrá þingsins í dag. Þar sem slíkt er í andstöðu við þingsköp og þá reglu að þingmál eigi að liggja frammi í a.m.k. tvær nætur áður en þau eru rædd hef ég ákveðið að draga málið til baka frekar en að una flýtimeðferð á því. Ef stjórnarmeirihlutinn getur ekki komið fram með raunhæfa tímasetta áætlun um hvernig á að ljúka stjórnarskrármálinu nú á allra næstu dögum er þó augljóst að þau ráða ekki við málið innan sinna raða og ber því að fara frá.

Þór Saari

þingmaður Hreyfingarinnar“