Þór Saari lagði í dag fram tillögu til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina. Hefur hann óskað eftir því við forseta Alþingis að tillagan verði tekin á dagskrá þingsins á morgun, 7. mars. Þetta er önnur vantrauststillagan sem Þór leggur fram á jafnmörgum vikum, en síðast lagði hann fram slíka tillögu 20. febrúar.

Í greinargerð með tillögunni segir að hún beinist gegn ríkisstjórninni þar sem hún sitji í umboði meiri hluta þings,en þingið geti ekki afgreitt frumvarp til stjórnskipunarlaga byggt á þeim drögum sem samþykkt var að leggja til grundvallar nýrri stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu í október í fyrra.

„Lýðræðisumbætur sem lofað var í aðdraganda kosninga hafa ekki séð dagsins ljós og enn er við lýði ójafn kosningarréttur eftir landshlutum, ójafnrétti í fjármálum stjórnmálaflokka og skortur á persónukjöri og beinu lýðræði,“ segir í greinargerðinni.

Þar segir jafnfamt að með hliðsjón af því grundvallaratriði í lýðræðisríkjum að allt vald komi frá þjóðinni virðist ríkisstjórnin ganga í berhögg við augljósan vilja þjóðarinnar um nýja stjórnarskrá. „Slíkri ríkisstjórn er eðli málsins samkvæmt ekki stætt að vera við völd og ber því að fara frá. Lagt er til að fram að kjördegi sitji ríkisstjórn skipuð fulltrúum allra flokka á þingi í stað þess að fráfarandi stjórn sitji sem starfsstjórn fram að þeim tíma. Með því eru meiri líkur á að sátt náist um mál sem varða hagsmuni þjóðarinnar.“