Háskólinn í Reykjavík og Landsamband íslenskra útvegsmanna hafa sameinast um stofnun nýrrar námsbrautar fyrir stjórnendur í sjávarútvegi.

Náminu er ætlað styrkja stjórnendur í starfi, efla leiðtogahæfni þeirra og gefa þeim nýja sýn á þau verkefni og áskoranir sem þeir mæta, segir í frétt á vef LÍÚ . Vonast er til þess að námið verði ábatasöm fjárfesting fyrir fyrirtæki í greininni auk þess sem vonir eru bundnar við aukin samskipti milli fyrirtækja muni skila sér í eflingu sameiginlegs markaðsstarfs íslensks sjávarútvegs í framtíðinni.

Á meðal kennara í náminu eru Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Sjávarklasans, Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, og María Ellingsen, leikstjóri og stjórnendaþjálfari.