Þóra Kristín Ásgeirsdóttir sem hefur starfað sem fréttamaður á 365 miðlum undanfarin ár hefur verið ráðin sem fréttastjóri Fréttatímans. Þóra greindi frá þessu í tölvupósti sem hún sendi á samstarfsfólk sitt í dag:

„Kæru félagar. Hef ráðið mig á Fréttatímann og er að hefja störf þar sem fréttastjóri. Það er með söknuði sem ég kveð ykkur eftir þennan stutta tíma en ný verkefni kalla. Þakka ykkur öllum kærlega fyrir samstarfið og gleðileg jól."

Hópur undir forystu Gunnars Smára Egilssonar keypti nýlega allt hlutafé í Miðopnu, eiganda Fréttatímans. Gunnar Smári verður útgefandi blaðsins og verður ritstjóri ásamt Þóru Tómasdóttur.  Meðal nýrra eigenda Miðopnu eru ásamt Gunnari Smára þeir Árni Hauksson, Hallbjörn Karlsson, Sigurður Gísli Pálmason og Valdimar Birgisson og eiga allir viðlíka stóran hlut.