Þóra B. Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Seðlabanka Íslands.

Hún hóf störf hjá Greiðsluveitunni, sem er í eigu Seðlabankans árið 2015 sem sem verkefnastjóri Draupnis en tók tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs 2019.

Þóra var markvörður kvennalandsliðsins í knattspyrnu um langt árabil og er einn leikjahæsti leikmaður landsliðsins með 108 landsleiki. Hún lék lengi erlendis sem atvinnumaður í Belgíu, Svíþjóð og Ástralíu.

Í tilkynningu á vef Seðlabankans segir að árin 2009-2014 var Þóra atvinnumaður í knattspyrnu og starfaði sem stjórnandi á fjármálasviði Deutsche Post World Net frá 2007 til 2009. Þóra er með BA-gráður í sagnfræði og stærðfræði frá Duke University og MS-gráðu í stjórnun frá Malmö Universitet.