Háskólinn í Reykjavík hefur ráðið dr. Þórönnu Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og stjórnunar. Þóranna hefur DBA-gráðu frá Cranfield háskóla og MBA-gráðu frá IESE. Hún starfaði á árum áður hjá Háskólanum í Reykjavík, meðal annars sem forstöðumaður og aðstoðardeildarforseti viðskiptadeildar og framkvæmdastjóri Stjórnendaskólans.Hún hefur undanfarin ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra samskipta og viðskiptaþróunar hjá Auði Capital.