Þóranna Jónsdóttir hefur sagt sig úr stjórn Íslandsbanka. Hún hefur setið í stjórn bankans frá september 2013. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Þóranna er forseti viðskiptadeildar við Háskólann í Reykjavík.

Gunnar Fjalar Helgason tekur sæti í stjórninni í stað hennar, en hann var áður varamaður í stjórninni.

Hann starfar hjá Símanum og er stjórnarformaður dótturfélaga Símans, utan Mílu.