Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi verður formaður stjórnar Iceland Naturally. Það eru markaðssamtök sem starfa með það að markmiði að kynna ferðamennsku, þjónustu, vörur og menningu á Íslandi.
Það er Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem skipar Þorbjörgu Helgu í formannsstólinn en auk stjórnvalda eiga Icelandic Group, Íslandsbanki, Reyka Vodka, Reykjavíkurborg, Icelandic Glacial Water, 66° Norður, Bláa lónið, Keflavíkurflugvöllur, Landsvirkjun og Íslandsstofa aðild að Iceland Naturally.