Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir verður nýr sviðsstjóri lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Þorbjörg hefur síðustu tvö ár starfað sem aðstoðarsaksóknari hjá embætti ríkissaksóknara og hefur áður starfað innan dómstóla sem aðstoðarmaður dómara. Hún hefur einnig starfað við saksókn fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.

Þorbjörg lauk LL.M. prófi frá lagadeild Columbia háskóla í New York árið 2011 og sérhæfði sig í alþjóðlegum refsirétti. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið diplómaprófi í afbrotafræði frá HÍ. Þorbjörg hefur enn fremur unnið við rannsóknarstörf á sviði refsiréttar og fékk m.a. styrk frá Norræna sakfræðiráðinu 2012, þegar hún vann að rannsókn um afbrotið nauðgun í samvinnu við innanríkisráðuneytið.

Helga Kristín Auðunsdóttir, sem lætur af störfum sviðsstjóra lögfræðisviðsins, mun leiða þróun á sameiginlegu meistaranámi í viðskiptalögfræði með háskólunum í Árósum og í Dublin.