Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar og annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum.

Þetta kemur fram í tilkynningu Þórdísar, en kosið er um varaformann á landsfundi Sjálfstæðismanna sem haldinn verður helgina 16. til 18. mars næstkomandi.

Þórdís Kolbrún var áður en hún fór á þing og í ráðuneytið aðstoðarmaður Ólafar Nordal innanríkisráðherra og fyrrum varaformanns flokksins.

Yfirlýsing Þórdísar Kolbrúnar í heild sinni:

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að gegna margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á undanförnum árum sem framkvæmdastjóri þingflokksins, aðstoðarmaður ráðherra, frambjóðandi í tvennum alþingiskosningum og ráðherra í tveimur ríkisstjórnum.

Þetta hafa verið krefjandi verkefni en fyrst og fremst gefandi, því að það er í senn ástríða mín og forréttindi að vinna að framgangi sjálfstæðisstefnunnar, eiga samtöl og samvinnu við fólk og hlúa að framtíð og tækifærum íslensks samfélags.

Það hefur verið dýrmætt að fá hvatningu víða að og hún vegur þungt í minni ákvörðun. Ég hlakka til að eiga samtöl við sem flesta á næstu dögum og vikum um sóknarfæri okkar Sjálfstæðismanna.