Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fjárfestir og framkvæmdastjóri Pizza Hut á Íslandi, var rétt í þessu kjörin formaður FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu.

Þórdís Lóa gaf ein kost á sér til formanns FKA og var því sjálfkjörin. Úr stjórn FKA ganga Hafdís Jónsdóttir formaður og Svava Johansen. Bryndís Emilsdóttir og Rúna Magnúsdóttir gáfu kost á sér á ný í stjórn félagsins og þá buðu þær Iðunn Jónsdóttir og Sigþrúður Guðmundsdóttir sig einnig fram til stjórnar. Bryndís, Iðunn og Rúna náðu kjöri á aðalfundinum í dag.

Í stjórn FKA sitja sjö konur að meðtöldum formanni. Á hverju ári eru þrír stjórnarmenn kjörnir til tveggja ára í senn og formaður er kjörinn annað hvert ár.