Þórdís Bjarnadóttir, lögmaður, hefur gengið til liðs við Deloitte og mun starfa sem liðsstjóri á skatta- og lögfræðisviði félagsins.

Þórdís hefur starfað hjá ADVEL lögmönnum undanfarin 6 ár og hefur meðal annars sérhæft sig í ráðgjöf til fyrirtækja, samrunum, yfirtökum og fjármögnun fyrirtækja. Áður en Þórdís hóf störf hjá ADVEL starfaði hún m.a. sem lögfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands.

„Áhersla okkar er að veita viðskiptavinum Deloitte skatta- og lögfræðiráðgjöf í hæsta gæðaflokki. Við erum því afskaplega ánægð með að fá Þórdísi til liðs við okkur. Sérfræðiþekking og yfirgripsmikil reynsla Þórdísar fellur vel að þjónustuframboði sviðsins og lengri tíma áherslum,“ er haft eftir Bjarna Þór Bjarnasyni, sviðsstjóra skatta- og lögfræðisviðs Deloitte.