Eyrún Magn­ús­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Kjarn­ans. Hún hefur þegar hafið störf. Frá þessu er greint á vef Kjarnans .

Eyrún hefur síð­ast­liðin tæp sjö ár haft umsjón með og rit­stýrt Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins en starf­aði þar áður sem ráð­gjafi árum saman þar sem hún kom að ýmis konar verk­efna­stjórn­un, mark­aðs- og útgáfu­málum og stefnu­mót­un­ar­vinnu. Hún starf­aði einnig á RÚV á árunum 2004 til 2006 og var meðal ann­ars einn þátta­stjórn­enda Kast­ljóss á því tíma­bili. Eyrún er með BA gráðu í í hag­fræði með sagn­fræði sem auka­grein. Þá hefur hún lokið meist­ara­námi í stjórnun og stefnu­mótun frá við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Eyrún tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra af Þórði Snæ Júl­í­us­syni sem gegnt hefur því sam­hliða rit­stjóra­starfi frá byrjun árs 2018. Hann mun nú ein­beita sér alfarið af rit­stjórn Kjarn­ans.