Þórður Már Jó­hann­es­son, fjárfestir, og Sól­veig Pét­urs­dótt­ir, fyrr­um dóms­málaráðherra, hafa verið sýknuð af 2,3 milljarða króna skaðabótakröfu Lyfja­blóms ehf. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en mbl.is greinir frá þessu. Lyfjablóm er gert að greiða Þórði og Sólveigu 5 milljónir króna hvoru fyrir sig í málskostnað.

Málið hafði áður hlotið efn­is­meðferð fyr­ir héraðsdómi árið 2019 en þá voru Þórður og Sól­veig sýknuð á grund­velli tóm­læt­is og fyrn­ing­ar­laga. Niðurstöðunni var áfrýjað til Landsréttar sem ómerkti dóm héraðsdóms. Málinu var því aftur vísað í hérað.

Sjá einnig: Vill 2,3 milljarða vegna Gnúpsfléttu

Þórður Már Jóhannesson.
Þórður Már Jóhannesson.

Stefnan gegn Þórði Má byggði á því að hann hefði í störfum sínum sem forstjóri Gnúps brotið gegn hluthöfum félagsins. Krafan á hendur Sólveigu sneri að því að hún situr í óskiptu dánarbúi Kristins Björnssonar, eiginmanns hennar, sem var í forsvari fyrir fjárfestingar sínar og þriggja systra sinna. Saman áttu þau félagið Björn Hallgrímsson ehf., eigenda Gnúps. Nafni félagsins var síðar breytt í Lyfjablóm.