Þórey Vilhjálmsdóttir hefur verið skipaður formaður Ferðamálaráðs iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins, og Páll Marvin Jónsson verður varaformaður, bæði án tilnefningar. Þórey var áður aðstoðarmaður innanríkisráðherra en hún hefur BS gráðu í viðskiptafræðum og lauk MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Páll Marvin er formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja og framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja.

Svanhildur Konráðsdóttir var áður formaður ráðsins.