Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, hefur ákveðið að leita réttar síns vegna umfjöllunar DV um sig. Í DV í dag er umfjöllun um lekamálið svokallaða þar sem meðal annars segir að Þórey sé með réttarstöðu grunaðs manns.

„Í frétt í DV í morgun um rannsókn í tengslum við meintan leka trúnaðargagna úr innanríkisráðuneytinu vill undirrituð taka fram að í þeirri umfjöllun eru svo alvarleg ósannindi að ég hef nú í samráði við lögmann ákveðið að leita réttar míns gagnvart miðlinum,^ segir Þórey.

Þórey segir að þetta lúti að umræddri umfjöllun blaðsins, en einnig að öðrum og ótal ósönnum fréttum DV um þetta mál, þar sem blaðið hefur ítrekað kosið að fella dóma eða búa til atburðarrás sem eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

„Eins og ítekað hefur komið fram mun ég ekki frekar en aðrir starfsmenn ráðuneytisins, tjá mig frekar um málið á meðan rannsókn þess stendur yfir.  Það er von mín að henni ljúki brátt svo umræðan geti farið að snúast um staðreyndir fremur en órökstuddar dylgjur,“ segir Þórey.