Þórey Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, hefur hafið störf hjá Capacent sem ráðgjafi í stefnumótun og stjórnun. Einnig mun hún sinna ráðgjöf sem varðar samfélagsábyrgð, markaðsmál og vöruþróun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þórey Vilhjálmsdóttir.
Þórey Vilhjálmsdóttir.

Fram kemur í tilkynningunni að Þórey hafi stofnað og rekið fyrirtæki bæði á Íslandi og í Rússlandi auk þess að leiða ýmis stór verkefni og viðburði. Þórey hefur einnig reynslu úr stjórnsýslu og stjórnmálum sem fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra og framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur tekið þátt í margháttuðum félagsstörfum og sat m.a. í stjórn UNwomen, íslenskri landsnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna og í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.

Þórey er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá HÍ með áherslu á alþjóðaviðskipti, MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og CEIBS viðskiptaháskóla, Sjanghæ, Kína.

„Capacent hefur lengi verið leiðandi ráðgjafarfyrirtæki og með ráðningu Þóreyjar erum við að styrkja reynslumikið teymi okkar enn frekar og efla þannig þjónustu við viðskiptavini. Þórey mun leggja áherslu á nýjar leiðir í stefnumótun þar sem skapandi hugsun, þverfagleg teymi og aðferðir hönnunar eru notaðar en sú aðferðafræði er í auknum mæli nýtt af leiðandi fyrirtækjum á heimsvísu,“ segir Ingvi Þór Elliðason, framkvæmdastjóri Capacent.