Þorgeir Eyjólfsson hefur verið ráðinn tímabundið sem verkefnastjóri í Seðlabanka Íslands við losun gjaldeyrishafta. Hann mun hafa umsjón með framkvæmd áætlunar um losun haftanna í samstarfi við tiltekin svið og starfsmenn Seðlabankans, meta umsóknir um nýtingu á fjárfestingargengi samkvæmt svokallaðri 50/50 leið, eiga í samskiptum við þátttakendur í útboðum og veita ráðgjöf um framkvæmd útboða og varðandi undanþágur og eftirlit til að koma í veg fyrir sniðgöngu.

Þorgeir gegndi m.a. starfi forstjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna frá 1984 til 2009 og var framkvæmdastjóri eignastýringar MP Banka frá október 2009 til maí 2011. Þá hefur Þorgeir víðtæka reynslu af setu í stjórnum ýmissa innlendra og erlendra fyrirtækja, stofnana og lífeyrissjóða og sat m.a. í tæpan áratug í stjórn Kauphallarnefndar sem var ráðgefandi nefnd um innleiðingu reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins á fjármálamarkaði. Þorgeir hlaut AMP-gráðu (Advanced Management Program) frá Harvard Business School árið 1998 og er einnig með MIF-gráðu frá Háskólanum á Bifröst í alþjóða banka- og fjármálum.