Þorgrímur Ingason hefur verið ráðinn birtingaráðgjafi hjá auglýsingastofunni Pip­ar\TBWA. Þorgrímur hefur rúmlega áratugs reynslu í markaðsmálum sem Birtingaráðgjafi hjá Birtingahúsinu þar sem hann bar ábyrgð á ráðstöfun auglýsingafés fjölmargra fyrirtækja, stórra og smáa.

Þorgrímur sá meðal annars um gerð birtingaáætlana og innkaup á auglýsingabirtingum í fjölmiðlum. Hann sá um samskipti við auglýsingadeildir fjölmiðla fyrir hönd viðskiptavina og hinar ýmsu greiningar svo sem miðla-, samkeppnis- og neyslu- og lífsstíls greiningar. Hann mun nú sinna þeim verkefnum fyrir Pip­ar\MEDIA, birtingadeild Pipars\TBWA.

Þorgrímur er með BA gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og hefur undanfarin tvö ár verið búsettur, ásamt fjölskyldu sinni í Svíþjóð þar sem hann hefur lagt stund á meistaranám í Media & Communication studies við Háskólann í Malmö.

Þorgrímur er giftur Fjólu Kristínu Helgadóttur, mannauðsstjóra og eiga þau tvö börn. Þorgrímur er áhugamaður um hjólreiðar og veit fátt betra en góðan hjólatúr í góðum félagsskap, hann elskar tónlist og kvikmyndir ásamt því að fylgjast vel með í knattspyrnuheiminum.