Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er nýr formaður þingflokks Pírata. Kosið var í stjórn þingflokks á þingflokksfundi í vikunni. Helgi Hrafn Gunnarsson var kjörinn varaþingflokksformaður og Jón Þór Ólafsson er ritari þingflokks.

Þórhildur Sunna hefur verið þingmaður Pírata síðan haustið 2016, var oddviti Pírata í Reykjavík suður í nýafstöðnum kosningum og gegndi stöðu aðal samningamanns Pírata í stjórnarmyndunarviðræðunum að því er segir í tilkynningu. Ennfremur segir að hún hafi verið alþjóðaritari framkvæmdaráðs Pírata og setið í úrskurðarnefnd flokksins. Þórhildur Sunna er lögfræðingur að mennt en hún sérhæfði sig í alþjóðlegum mannréttindum og refsirétti í Háskólanum í Utrecht Hollandi.

"Píratar hafa - allt frá því að stjórnarmyndunarviðræðum milli Pírata, Samfylkingar, Framsóknar og Vinstri grænna lauk - einbeitt sér að því að skipuleggja starfið framundan í vetur og áherslur Pírata fyrir komandi kjörtímabil. Þar ber helst að nefna baráttu fyrir auknu upplýsinga- og tjáningarfrelsi, auknu gagnsæi á þingi sem og í stjórnsýslunni og bættri mannréttindavernd í margvíslegum skilningi," er haft eftir Þórhildi Sunnu í tilkynningunni.