Þórhildur Ólöf Helgadóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra Íslandspósts og hefur hún þegar tekið til starfa. Tekur hún við starfinu af Birgi Jónssyni, en tilkynnt var um starfslok hans í byrjun nóvember. Áður gegndi Þórhildur starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrirtækisins en hún tók við þeirri stöðu í lok sumars 2019. Þórhildur er fyrsta konan til að gegna stöðu forstjóra Póstsins. Íslandspóstur greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

„Ég er mjög ánægð með að fá þetta tækifæri og það mikla traust sem mér er sýnt. Pósturinn hefur gengið í gegnum mikið umbreytingarferli á síðustu misserum til þess að takast á við áskoranir í starfsemi félagsins.  Við erum stolt af árangri okkur en höldum áfram að styrkja fyrirtækið og bæta þjónustuna," er haft eftir Þórhildi í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að Þórhildur hafi mikla reynslu á sviði rekstrar og fjármála. Auk starfa sinna fyrir Íslandspóst hafi hún verið fjármálastjóri 66° Norður, bílaumboðsins Heklu og Securitas. Þá hafi hún setið í stjórn Sjóvár-Almennra og átt sæti í stjórnum dótturfélaga þeirra fyrirtækja sem hún hefur starfað hjá. Þórhildur er með cand. oecon-próf frá Háskóla Íslands.

„Við fögnum því sannarlega að fá jafn öflugan stjórnanda og Þórhildi Ólöfu Helgadóttur til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem bíða Póstsins á miklum breytingatímum og leiða þetta mikilvæga almannaþjónustufyrirtæki inn í framtíðina," segir Bjarni Jónsson, formaður stjórnar Íslandspósts í tilkynningunni.