Þórir Örn Árnason hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur og regluvörður Móbergs ehf en ráðning hans er liður í nýju skipulagi hjá fyrirtækinu og til að styðja við vöxt félagsins sem er stærsta fjármálatæknifyrirtæki landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Móberg.

Þórir hefur langa reynslu úr fjármálageiranum. Undanfarin 11 ár hefur hann veitt lögfræðiinnheimtu Íslandsbanka forstöðu, en þar hafði hann yfirumsjón og meðferð með öllum innheimtumálum bankans. Einnig fólust í starfinu málflutningur, greinargerðaskrif, almenn lögmannastöf og umsjón með öðrum lögmönnum bankans.

Þórir, sem lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands árið 1995, kemur með umfangsmikla reynslu inn í Móberg ehf og dótturfélög þess, þar sem reynsla hans og þekking mun nýtast vel. Það á ekki síst við um gerð og þróun hugbúnaðar fyrir lögmenn sem snýr að verkefna- og skjalakerfi, sem og innheimtukerfi, sem Vergo hannar.  Óhætt er að fullyrða að ráðning Þóris muni vega þungt í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru.

Þórir hefur þegar tekið til starfa hjá Móberg ehf, sem er leiðandi í þróun nútíma fjármálatæknilausna.  Móberg er eigandi nokkurra fyrirtækja, þ.e. Netgíró, Aktiva jafningjalána og Vergo.