Þormóður Jónsson auglýsingamaður hefur tekið að sér að sinna ráðgjafastörfum í markaðsmálum fyrir 365 miðla. „Hann er ekki fastur starfsmaður í fullu starfi en hann er ráðgjafi í markaðsmálum,“ segir Ari Edwald forstjóri 365.

„Við höfum skipt við fyrirtæki sem hann hefur verið í forsvari fyrir töluvert mikið og lengi,“ segir Ari. Þormóður hafi núna dregið sig út úr því fyrirtæki og því hafi orðið smá breytingar á samskiptum við hann. Fyrirtækið sem Ari vísar í er auglýsingastofan Fíton, sem fékk heitið Janúar fyrir skömmu, en Þormóður var stjórnarformaður og síðar framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

„Hann er ekki ráðinn starfsmaður hér, en hann er að vinna nánar með okkur í þessum málum en áður og með annan vinkil,“ segir Ari.

Hann segir að starf Þormóðs nái yfir allt það sem 365 gerir í markaðsmálum. „Það er mjög stór hluti af okkar vinnu,“ segir Ari Edwald.