Þórólfur Árnason var endurkjörinn stjórnarformaður Fríhafnarinnar á aðalfundi félagsins á Hotel Natura í gær. Hann hefur vermt stól stjórnarformanns frá árinu 2011. Þórólfur er jafnframt formaður stjórnar Isavia, sem annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi og stýrir flugumferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu.

Á aðalfundi Fríhafnarinnar var sitjandi stjórn sömuleiðis endurkjörin.

Í stjórninni sitja ásamt Þórólfi þau Arnbjörg Sveinsdóttir, Bergur Sigurðsson, Ólafur Thordersen og Jónína Hólm.