Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Thorsil ehf. að afloknu opinberu auglýsingaferli. Nokkur ákvæði leyfisins hafa verið endurskoðuð og þarf fyrirtækið að uppfylla ný ákvæði til að sporna gegn lyktarmengun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Forsaga leyfisveitingarinnar er sú að þann 27. nóvember í fyrra kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð að fella úr gildi ákvörðum Umhverfisstofnunar frá 11. september 2015 um að veita Thorsil starfsleyfi fyrir rekstri kísilverksmiðju í Helguvík. Því þurfti Umhverfisstofnun að taka málið fyrir á ný. Úrskurðurinn byggði á því að athugasemdarfrestur hafi verið of stuttur miðað við ákvæði reglugerðar.

Hörð viðbrögð íbúa Reykjanesbæjar

„Ný auglýsing starfsleyfistillögu fór fram á tímabilinu 3. nóvember 2016 til 2. janúar 2017. Auglýst tillaga var samhljóða afgreiðslu Umhverfisstofnunar á starfsleyfinu frá 2015. Á sama tíma og opið var fyrir athugasemdir varð mikil fréttaumræða vegna mengunar og lyktar frá annarri kísilverksmiðju á sama svæði, verksmiðju Sameinaðs Sílikons (United Silicon).

Urðu hörð viðbrögð hjá mörgum íbúum Reykjanesbæjar vegna ítrekaðra óhappa og örðugleika,“ segir í tilkynningunni. Í kjölfarið var haldið kynningarfundur þann 5. janúar 2017 þar sem að um 30 til 40 manns mættu og kynnti þar Umhverfisstofnun drög að starfsleyfi fyrir Thorsil og athugasemdarfrestur var síðan framlengdur til 9. janúar 2017.

Starfsleyfi til 2031

„Að loknum umsagnarfresti höfðu borist athugasemdir frá 30 einstaklingum, tvö minnisblöð frá rekstraraðila og eitt áframsent erindi frá Samgöngustofu. Nokkrir umsagnaraðilar vöktu í athugasemdum sínum athygli á undirskriftalista þar sem farið var fram á að Umhverfisstofnun gefi ekki út starfsleyfi fyrir „kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík að svo komnu máli“ eins og það er orðað í texta þeirra sem óskuðu þess að undirskriftalistinn yrði hafður til hliðsjónar við ákvörðun. Tæplega 3500 einstaklingar skrifuðu nöfn sín á undirskriftalistann.

Umhverfisstofnun fór yfir allar athugasemdir sem bárust og breytti eins og áður segir nokkrum ákvæðum fyrra starfsleyfis til að koma á móts við ábendingar almennings. Helst ber að nefna ný ákvæði um lykt í greinum 3.19 og 3.20 vegna reynslu sem skapast hefur af hinni verksmiðjunni. Ákvæði um lykt voru ekki í starfsleyfinu sem fellt var úr gildi, enda var engin umræða um lykt frá starfseminni í mati á umhverfisáhrifum eða í umsóknargögnum. Var fyrir fram ekki talin hætta á slíkum vandamálum.

Nokkrum öðrum atriðum í starfsleyfinu var breytt lítillega og vísast þar til greinargerðar og starfsleyfisins.
Starfsleyfið gildir  til 11. september 2031,“ segir að lokum í tilkynningunni frá Umhverfisstofnun.