Landsvirkjun og Thorsil hafa komist að samkomulagi um drög að rafmagnssamningi milli félaganna um afhendingu á rafmagni til kísilvers Thorsil í Helguvík. Þá hefur Thorsil einnig samið við HS Orku um raforkukaup. Í frétt á vefsíðu Landsvirkjunar segir að fyrirtækið muni senda samningsdrögin í undirbúningsferli hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og bíða niðurstöðu stofnunarinnar áður en samningurinn verður tekinn til umfjöllunar og endanlegrar afgreiðslu í stjórn Landsvirkjunar. Þann 16. október var greint frá því að Thorsil hefði tryggt sér orku , en ekki kom þá fram hvaðan sú orka ætti að koma.

Undirritun er háð tilteknum skilyrðum, svo sem samþykki stjórna beggja félaga og að samningurinn uppfylli kröfur og skilyrði ESA.

Ráðgert er að kísilver Thorsil verði gangsett á fyrsta ársfjórðungi 2018. Samkvæmt samningsdrögunum mun Landsvirkjun afhenda Thorsil allt að 67 megawött gangi áætlanir eftir. Orkan verður afhent í áföngum úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar ásamt stækkun sem fyrirhuguð er við Búrfellsvirkjun. Þá er gert ráð fyrir að síðasti áfangi orkuafhendingar Landsvirkjunar verði við gangsetningu Hvammsvirkjunar um mitt ár 2020.

Thorsil yrði þriðji viðskiptavinur Landsvirkjunar í kísilmálmiðnaði. Í fréttinni er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, að samningurinn yrði hagstæður fyrir báða aðila og að hann staðfesti þá miklu  eftirspurn sem sé eftir rafmagni á Íslandi.

HS Orka efur einnig tilkynnt að félagið hafi undirritað orkusölusamning við Thorsil ehf. sem hyggst reisa og starfrækja kísilver í Helguvík, Reykjanesbæ. Samkvæmt samningnum mun HS Orka afhenda allt að 32 MW, minni hluta þeirra raforku sem Thorsil mun nota.