Útflutningsverðmæti (FOB) fiskafurða árið 2013 var rúmlega 272 milljarðar íslenskra króna. Þorskafurðir gáfu mestu verðmætin árið 2013 eða 32% af heildarverðmæti sjávarafurða. Þetta kemur fram í frétt á vef LÍÚ .

Uppsjávartegundirnar loðna, makríll og síld voru einnig talsvert verðmætar, en samanlögð verðmæti þeirra voru 29% af heildarverðmæti fiskafurða. Þorskur, makríll, loðna og síld standa saman að um 61% af heildar útflutningsverðmætum sjávarafurða. Þessar fjórar tegundir eru því þær sem skapa mestu tekjurnar fyrir íslensk þjóðfélag.