Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins gaf ekki kost á sér í annað sætið í Reykjavík norður, eftir að hafa tapað fyrir Karli Garðarssyni um oddvitasætið.

Var í þriðja sæti í suðvestur

Þorsteinn sagði í viðtali við RÚV að hann sé ekki búinn að ákveða framhaldið en núna líti allt út fyrir að hann sé að hætta á þingi. yrði Þorsteinn þá áttundi þingmaður Framsóknarflokksins til að hætta eftir þetta kjörtímabil.

Þorsteinn sat á þingi fyrir suðvesturkjördæmi, en hann var þar í þriðja sæti á eftir Eygló Harðardóttur og Willum Þór Þórssyni. Sóttist hann eftir að leiða flokkinn í Reykjavík norður, "en það var ekki eftirspurn eftir því," segir Þorsteinn í viðtali við RÚV.

Þrír af fjórum hættir

Í síðustu þingkosningum fékk Framsóknarflokkurinn fjóra þingmenn kjörna í Reykjavík, en þrír þeirra hafa þegar sagt ætla að hætta, Vigdís Hauksdótttir, Sigrún Magnúsdóttir og Frosti Sigurjónsson.

Yrði Þorsteinn áttundi þingmaður flokksins sem myndi hætta eftir þetta kjörtímabil, en hinir fjórir eru Jóhanna María Sigmundsdóttir, Haraldur Einarsson, Páll Jóhann Pálsson og Ásmundur Einar Daðason.

Þá er ljóst að listar flokksins í Reykjavík verða skipaðir þannig:

Reykjavík suður

  1. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra
  2. Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri og varaborgarfulltrúi
  3. Alex Björn B. Stefánsson, nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
  4. Björn Ívar Björnsson, háskólanemi
  5. Gissur Guðmundsson, matreiðslumeistari

Reykjavík norður

  1. Karl Garðarsson, alþingismaður
  2. Lárus Sigurður Lárusson, Hdl
  3. Sævar Þór Jónsson, Hdl
  4. Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
  5. Gunnar Kristinn Þórðarson, stjórnsýslufræðingur