Sjónvarpsmaðurinn kunni Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur verið ráðinn til kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslufyrirtækisins Stórveldisins. Þetta staðfestir Hugi Halldórsson, framkvæmdastjóri Stórveldisins.

„Hann mun sinna sérverkefnum fyrir félagið,“ segir Hugi. Hann telur þó ekki tímabært að útskýra nákvæmlega á þessari stundu hvaða sérverkefni það eru. „Það mun skýrast seinna,“ segir Hugi. Hann kveðst mjög glaður yfir því að hafa ráðið Þorstein. „Það er mikill fengur í að fá þennan mann um borð,“ segir Hugi.

Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur starfað við sjónvarpsþáttagerð um árabil. Bæði fyrir RÚV og Stöð 2.