Skýrt sameiginlegt markmið er að stemma stigum við verðbólgu, segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Samningaviðræður hafa staðið yfir undanfarna daga í húsi ríkissáttasemjara.

Þorsteinn segir að til að ná efnahagslegum stöðugleika þurfi að taka upp agaðri vinnubrögð.