Þorsteinn Friðriksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Plain Vanilla, er á leiðinni til Kína á næstu vikum. Plain Vanilla hyggst markaðssetja QuizUp þar í samstarfi við kínverska fyrirtækið Tencent Holdings, sem á stóran hlut í Plain Vanilla.

Þá styttist í að QuizUp komi út fyrir Android síma. „Þetta er alveg að koma. Þó að leikurinn líti út fyrir að vera tiltölulega einfaldur þegar þú ert með hann í símanum þá er dýptin í honum mjög mikil,“ segir Þorsteinn. „Við erum að gera þetta eins hratt og við getum og android-útgáfan er í beta-prófunum núna.“