Stjórn Viðreisnar hefur staðfest framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir alþingiskosningarnar í október næstkomandi. Listinn er leiddur af Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, og er hann fléttaður konum og körlum til jafns að því er segir í fréttatilkynningu frá flokknum.
- Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttisráðherra,
- Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur,
- Páll Rafnar Þorsteinsson, heimspekingur
- Jarþrúður Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri
- Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri
- Ragnheiður Kr. Finnbogadóttir, lögfræðingur
- Ingólfur Hjörleifsson, aðjúnkt og framhaldsskólakennari
- Birna Hafstein, leikari
- Aron Eydal Sigurðarson, sálfræðinemi
- Margrét Kaldalóns Jónsdóttir, félagsráðgjafi og stjórnsýslufræðingur
- Ari Jónsson, rafvirkjameistari og rafhönnuður
- Margrét Cela, verkefnastjóri
- Andri Guðmundsson, vörustjóri
- Helga Valfells, fjárfestir
- Sigurður Rúnar Birgisson,lögfræðingur
- Signý Hlín Halldórsdóttir, BA í uppeldis- og menntunarfræðum
- Sigurður Kristjánsson, barnalæknir
- Lilja Hilmarsdóttir, fararstjóri
- Kjartan Þór Ingason, félagsfræðingur og meistaranemi
- Guðrún Ragnarsdóttir Briem,félagsfræðingur
- Héðinn Svarfdal Björnsson, félagssálfræðingur
- Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri stofnunar Sæmundar Fróða