Þorsteinn Magnússon hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Icelandic Ný-Fisks í Sandgerði.

Þorsteinn á að baki fjölbreyttan starfsferil, jafnt innan sem utan sjávarútvegsins. Áður hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri Storms Seafood í Hafnarfirði 2013, og einnig var hann framleiðslu- og sölustjóri sama fyrirtækis 2012.

Þorsteinn er með B.Sc. gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. Einnif er hann með M.Sc. gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.

Forstjóri Icelandic Group, Árni Geir Pálsson, segir í tilefni ráðningarinnar að bakgrunnur og reynsla Þorsteins muni nýtast Icelandic vel í þróun og uppbyggingu fyrirtækisins.