Þorsteinn Egilsson svæðisstjóri Icelandair fyrir Norður-Ameríku hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Allianz á Íslandi. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Hann mun taka við af Eyjólfi Lárussyni.

Þrosteinn er véla- og iðnverkfræðingur að mennt og hefur verið svæðisstjóri Icelandair frá 2008. Áður var hann forstöðumaður leiðarkerfisstjórnunar hjá flugfélaginu.

Allianz er fyrirtæki sem býður upp á lífeyristryggingar auk líf- og sjúkdómatrygginga.