Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku og mun hann hverfa frá störfum 14. apríl nk. og greindi hann forseta Alþingis, Steingrími J. Sigfússyni frá þessari ákvörðun sinni síðdegis í gær. Þá mun Þorsteinn á sama tíma láta af varaformennsku þingflokks Viðreisnar. Þessu greinir Þorsteinn frá í yfirlýsingu á Facebook síðu sinni.

Þar segir hann ástæðu þess að hann segi af sér þingmennsku vera að hann hafi að vandlega íhuguðu máli samþykkt að taka að sér spennandi verkefni á vettvangi atvinnulífsins, þar sem hann muni hefja störf síðar í þessum mánuði.

„Ég hef starfað í stjórnmálum undanfarin tæp fjögur ár og er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt á þeim vettvangi. Ég hef tvívegis verið kjörinn þingmaður Reykvíkinga og það er mér mikill heiður að hafa fengið að sitja á Alþingi Íslendinga þennan tíma.

Þótt átök einkenni gjarnan störf þingsins í opinberri umfjöllun er mér efst í huga á þessum tímamótum sú dýrmæta reynsla sem ég hef öðlast og góð samskipti og vinskapur við samherja jafnt sem pólitíska andstæðinga. Ég kveð með söknuði allt það góða fólk sem ég hef starfað með á Alþingi á undanförnum árum, bæði þingmenn og ekki síður allt hið hæfileikaríka starfsfólk sem starfar fyrir Alþingi.

Ég er stoltur af því að hafa tekið þátt í uppbyggingu Viðreisnar. Flokkurinn hefur á fáum árum fest sig í sessi sem öflugur og skýr valkostur fyrir frjálslynt fólk á miðju íslenskra stjórnmála. Flokkurinn hefur sterka innviði og mikinn fjölda hæfileikafólks. Viðreisn hefur þegar markað sér sess til framtíðar í íslenskum stjórnmálum. Ég fer frá borði fullviss um að þetta fley mun áfram sigla seglum þöndum. Viðreisn mun áfram berjast fyrir betra mannlífi og bættum kjörum Íslendinga og ég hlakka til að fylgjast með flokknum af hliðarlínunni," segir í yfirlýsingu Þorsteins.

Þorbjörg fyllir í skarðið

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara og varaþingmaður Viðreisnar, mun fylla í skarð Þorsteins, að því er kemur fram á Vísi .

Þorbjörg er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur að auki lokið framhaldsnámi í lögfræði frá Columbia í New York. Hún var einmitt aðstoðarmaður Þorsteins þegar hann gegndi embætti félags- og jafnréttismálaráðherra.