Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Hefur hann þegar hafið störf.

Mun hann auk samskipta við fjölmiðla vinna að margvíslegum verkefnum fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg sem lúta að málefnum félagsins og útgáfumálum þess.

Hefur Þorsteinn víðtæka reynslu af almannatengslum og kynningarmálum og hefur hann starfað sem ráðgjafi í þeim málum í 18 ár. Starfaði hann lengst af hjá KOM almannatengslum, en þar áður starfaði hann sem blaðamaður, ritstjóri og dagskrárgerðarmaður.