Þórunn Sveinbjarnardóttir, stjórnmálafræðingur, hefur verið ráðin framkvæmdastýra Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands.

Þórunn er fyrrverandi alþingismaður, þingflokksformaður og ráðherra umhverfismála. Hún var fyrsti formaður Röskvu og hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu, sendifulltrúi hjá Rauða krossinum og framkvæmdastýra Kvennalistans. Þórunn var nú síðast aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar.

Í tilkynningu er haft eftir Árna Páli að það sé mikið ánægjuefni að Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi fallist á að taka að sér framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. Hún þekki innviði flokksins betur en flestir aðrir og hafi gríðarlega reynslu af stjórnmálastarfi. Ekki spilli fyrir að hún njóti mikils trausts meðal flokksmanna og hafi hlotið flest atkvæði í flokksstjórnarkjöri á landsfundi í febrúar.