Þór­unn Guðmunds­dótt­ir hæsta­rétt­ar­lögmaður var í dag kjörin formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, að því er kemur fram í frétt á vefsíðu bankans.

Þórunn var kosin í bankaráðið af Alþingi í mars síðastliðnum í stað Ólafar Nordal sem hætti í ráðinu er hún tók við embætti innanríkisráðherra. Á fundi ráðsins í dag var Þórunn svo kosin formaður. Varformaður bankaráðsins er Jón Helgi Eg­ils­son.