Þórunn Egilsdóttir hefur verið valin þingflokksformaður Framsóknarflokksins, en valið fór fram á þingflokksfundi sem nú stendur yfir. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV .

Þórunn tekur við stöðunni af Sigrúnu Magnúsdóttur sem tók við embætti umhverfisráðherra um áramótin.

Þá mun Vigdís Hauksdóttir taka sæti Sigrúnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og Elsa Lára Arnardóttir tekur sæti Þórunnar í velferðarnefnd.

Þórunn var áður varaformaður þingflokksins, en Ásmundur Einar Daðason verður nú varaformaður og Willum Þór Þórsson ritari.