Þórunn M. Óðinsdóttir hefur hafið störf á ráðgjafasviði KPMG, en hún hefur unnið sem stjórnunarráðgjafi frá árinu 2007 og rekið eigið ráðgjafafyrirtæki frá árinu 2009. Þórunn er kennari að mennt og með meistaragráðu í stjórnun frá Bifröst. Starfaði hún áður við skólastjórnun og kennslu.

Hún mun sinna ráðgjöf á sviði lean management en hún hefur aðstoðað fjölda fyrirtækja við að nota þá aðferðafræði. Auk þess hefur hún kennt í straumlínustjórnunarnámskeiði HR frá upphafi ásamt fjölda fyrirlestra, kynninga, þjálfunar og kennslu um hugmyndafræðina á bakvið aðferðarfræðina.