Í dag undirritar Icelandair, dótturfélag Icelandair Group, samning við bandaríska tæknifyrirtækið Row 44 um uppsetningu þráðlauss internets í flugflota Icelandair. Með því munu farþegar Icelandair geta notað eigin tölvubúnað til að tengjast internetinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en gert er ráð fyrir að vinna við innleiðingu hefjist á fjórða ársfjórðungi þessa árs og að henni ljúki haustið 2013.

„Í vélum Icelandair er til staðar fullkomið afþreyingarkerfi og samningurinn við Row 44 er viðbót sem gerir okkur kleift að auka enn frekar þjónustu og upplifun farþegans um borð“, segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group, í tilkynningunni.