Þreföld eftirspurn er eftir húsnæði í nýju smáíbúðahverfi sem Viðskiptablaðið sagði frá í síðustu viku , en núþegar sækja 300 um 130 íbúðir hjá Þorpinu vistfélagi í Gufunesi. Dregið verður um íbúðir við úthlutun en áhugasamir geta skráð sig fyrir íbúð á heimasíðu verkefnisins, www.thorpidvistfelag.is , eða á facebook síðu þess.

„Umsóknir streyma inn og fjöldi umsækjenda verður margfaldur á við það sem við getum annað. Við erum að fá að meðaltali um 5 umsóknir á hverjum klukkutíma. Þetta eru ævintýralegar viðtökur og framar okkar björtustu vonum“ segir Runólfur Ágústsson verkefnastjóri Þorpsins og bendir á að samkvæmt lóðavilyrði muni þurfa að draga á milli umsækjenda við úthlutun íbúða.

„Þessar viðtökur eru skýrt merki um þann markaðsbrest sem ríkt hefur á fasteignamarkaði“ segir Runólfur. „Á meðan fjöldi íbúða sem tekur mið af þörfum og væntingum íbúðarbyggenda eru óseldar er algjör skortur á litlum hagkvæmum ódýrum íbúðum sem hannaðar eru út frá þörfum og væntingum kaupenda.“

Verðlagðar frá 17 til 32 milljónir

Ætlunin skipuleggjenda verkefnisins er að verð íbúða verði mun lægra en þekkist á markaði, með fjögurra herbergja íbúð frá 32 milljónum króna og stúdíóíbúðir frá 17 milljónum króna. Íbúðirnar verða byggðar úr timbureiningum (módúlum) sem framleiddar eru innanhúss við kjöraðstæður.

Í fréttatilkynningu um málið eru hús úr timbri sögð eru mun vistvænni en hús úr steypu því um 8% af heildarlosun CO2 í heiminum sé vegna framleiðslu og notkunar á sementi og steypu. Hverfið er því sagt fyrsta vistvæna hverfið í Reykjavík, sem jafnframt stefnir að kolefnisjöfnun og að hafa umhverfismál almennt í forgangi. Í hverfinu verður mikil sameign og og boðið upp á ýmsar deililausnir.

Þorpið vistfélag hefur undanfarin tvö ár unnið að þróun á nýju hagkvæmu húsnæði fyrir ungt fólk og varð í meðal sigurvegara í samkeppni Reykjavíkurborgar um lóðir í haust. Borgarráð hefur nú samþykkt lóðavilyrði til félagsins á grundvelli samkeppninnar. Þorpið hugsar þetta nýja hverfi í Gufunesi sem lifandi vistþorp í borg.

Húsin framleidd í Lettlandi

Þorpið-vistfélag og Modulus hafa undirritað yfirlýsingu um samstarf varðandi framleiðslu á húsum í Gufunesi sem verða framleidd í Lettlandi. Fyrirtækið hefur á síðustu árum m.a. byggt hótel á Kirkjubæjarklaustri og fjölbýlishús fyrir Byggingafélagið Bjarg á Akranesi en Bjarg er leigufélag ASÍ og BSRB.

Húsin eru framleidd með timbri úr sjálfbærum skógum og félagið hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fá heimild til að planta grenndarskógi á grænu aðliggjandi svæði fyrir ofan byggðina til kolefnisjöfunar á flutningi og samsetningu húsanna.

Hönnuðir Gufunesverkefnis Þorpsins eru Yrki arkitektar sem hafa m.a. hannað nýjar íbúðir á Móavegi fyrir Byggingarfélagið Bjarg og stúdentagarða í Vatnsmýri fyrir Félagsstofnun stúdenta.

Geta byggt allt að 7 hæða blokkir

Í gildandi deiliskipulagi er leyfi til þess að byggja 5-7 hæða blokkir á lóðinni. Hugmyndafræði félagsins byggir hins vegar á lægri og þéttari byggð þar sem 2-4 hæða hús eru byggð í kringum sameiginlegt torg en grænar götur tengja saman byggðina sem opnast út til sjávar.

Við torgið verða sameiginlegt þvottahús, kaffihús og veislusalur ástamt pósthúsi fyrir aðsendar vörur og matvæli. Hverfið á þannig að verða sjálfbært þorp þar sem göturnar eru vistgötur fyrir fólk en ekki bíla.

Staðsetning og hæð húsa er ætlað að skapa skjólsælt, sólríkt og grænt umhverfi þar sem mikil sameign er við torgið á fyrstu hæð en íbúðir þar fyrir ofan. Eitt 4ra hæða hús skapar byggðinni skjól fyrir norðaustanátt en allar götur eru með sjávarsýn og húsin út við sjóinn eru einungis tvær hæðir til að hámarka fjölda íbúða með útsýni.

Gufunesið er sagt bjóða upp á einstaka staðsetningu fyrir þorp í miðri borg. Nýtt smáíbúðahverfi Þorpsins verður vistvænt samfélag þar sem metnaður verður lagður í endurvinnslu og umhverfismál. Byggðin liggur að einstakri stönd og handan við byggingarnar tekur við stórt grænt svæði.

Þorpið hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fá til ráðstöfunar á aðliggjandi grænu svæði reiti fyrir grænmetisgarða og hænsnaræktun. Þá munu þeir íbúar sem það kjósa geta fengið aðgang að rafknúnum deilibílum.