Icelandair sá um þrjár af hverjum fjórum áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli í októbermánuði árið 2013, en nú er hlutfallið komið niður í tæp 58%, þrátt fyrir að félagið hefur aukið umsvif sín umtalsvert á þessu tímabili.

Þetta kemur fram í frétt túrista , en ástæðan er sú að nú fljúga mun fleiri flugfélög til og frá landinu og svo hefur orðið margföldun í áætlunarflugi Wow air.

Á þessum þremur árum hafa áætlunarferðum flugfélagsins fjölgað úr 130 október 2013 í því að vera ríflega þrefalt fleiri í október í ár. Var nærri fjórða hvert flug frá Keflavíkurflugvelli á vegum félagsins.