Ráðstefnan „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ var haldin í gær í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þrettán fyrirtæki fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

Ráðstefnan er haldin af Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands í samstarfi við Nasdaq OMX Iceland, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þetta er í annað skiptið sem ráðstefnan er haldin.

Aðalræðumenn voru Per Lekvall, einn helsti sérfræðingur Svíþjóðar í stjórnarháttum og Magnus Billing, forseti kauphallarinnar Nasdaq OMX í Stokkhólmi. Ólöf Nordal, Innanríkisráðherra opnaði ráðstefnuna en gestir voru á annað hundrað.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu eru eftirfarandi:  Advania hf.,  Fjarskipti hf.,  Greiðsluveitan ehf.,  Íslandsbanki hf., Íslandspóstur hf.,  Íslandssjóðir hf.,  Landsbankinn hf.,  Landsbréf hf.,  Lánasjóður sveitarfélaga ohf.,  Mannvit hf.,  Nýherji hf., Stefnir hf. og VÍS hf.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, NASDAQ OMX á Íslandi og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands hafa tekið höndum saman til að bæta eftirfylgni fyrirtækja við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Í þeim tilgangi hafa þessir aðilar undirritað samstarfssamning sem felur í sér að öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda.

Rannsóknarmiðstöðin sér um framkvæmd matsins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi gefa út.