Naust Marine hefur í auknum mæli fengið þau verkefni að bæta þriðju togvindunni við í skip sem áður höfðu bara tvær vindur. Segir fyrirtækið frá því að í dag er varla sú nýsmíði þar sem ekki er gert ráð fyrir þriðju togvindunni.

Ástæðan er einföld, að því er þar segir. Meiri veiði og hagkvæmni við veiðar, þar sem olíukostnaður eykst lítið í samanburði við aukna veiði.

Í þessu samhengi er þess getið að nýlega var þriðju togvindunni bætt við í Brimskipin Akurey og Viðey auk skipsins Karelia II. Í Akurey og Viðey var þar að auki bætt við tveimur grandaravindum í hvort skip sem gerir það að verkum að hægt er að hafa þrjú troll tilbúin á dekki. Í þessum skipum var ekki gert ráð fyrir þriðju togvindunni við upphaflegu hönnun og smíði skipanna.

„Naust Marine hannaði einnig vindukerfi í tíu togara, 82 metra, fyrir Norebo en þeir eru nú í smíðum hjá Severnaya skipasmíðastöðinni í St. Petersburg í Rússlandi. Ekki var gert ráð fyrir þriðju togvindunni í upprunalegri hönnun skipanna en kaupandinn ákvað í því tilfelli að bæta henni við á síðari stigum vegna þeirrar hagkvæmni sem af því hlýst.“

Í skipunum Breka og Páli Pálssyni sem smíðaðir voru 2017 var gert ráð fyrir þriðju togvindunni frá upphafi og hefur það gefið mjög góða raun.

Þrjú troll samtímis

Naust Marine setti niður fjórðu togvinduna í norska skipið Remøy, sem stundar rækju- og þorskveiðar í Barentshafi, sem gerir því kleift að draga þrjú troll samtímis.

„Nú er u.þ.b. ár síðan vindunni ásamt stjórn- og hugbúnaði var komið fyrir um borð í skipinu og hefur búnaðurinn reynst vel og skipstjóri, áhöfn og útgerð eru mjög ánægð með breytingarnar.

Naust Marine hefur hannað og framleitt sjálfvirkan stjórnbúnað fyrir togvindur undir nafninu ATW í næstum 30 ár. Í seinni tíð hóf fyrirtækið einnig framleiðslu á vindum undir eigin nafni, ásamt því að framleiða alla stjórnun fyrir bæði tog- og aukavindur. Fyrirtækið hefur selt vindur, vindukerfi og stjórnbúnað í allt að 200 skip sem veiða nú um heim allan og árlega bætast ný skip við í þann hóp.