Þriðjungur leigugreiðslna til Reita í apríl hefur verið frestað og greiða á úr þeim málum í síðsumars og í haust samkvæmt tilkynningu frá Reitum . Líkur eru á að koma þurfi til móts við takmarkaðan hóp rekstraraðila í maí. Félagið vonast þó til að stuðningur hins opinbera við íslenskt atvinnulíf muni nýtast þeim sem verr standa.

Samkvæmt drögum að uppgjöri fyrsta ársfjórðungs verða rekstrartekjur Reita í góðu samræmi við áætlun eða um 2,9 milljarðar króna. Rekstrarhagnaður tímabilsins er áætlaður á bilinu 1,89 til 1,91 milljarður króna.

Viðskiptavinahópur Reita sé breiður og uppistaða hans séu fjárhagslega traustir aðilar. Þegar hafi um 770 milljónir verið greiddar í leigu vegna apríl sem sé um tveir þriðju áætlaðra leigutekna félagsins í mánuðinum.

„Rekstrarafkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi var góð og lánaskilyrði félagsins vel innan þeirra marka sem félaginu eru sett. Sala eigna á undanförnum mánuðum og sala skuldabréfa í febrúar og byrjun mars styrktu sjóðstöðu félagsins og var hún 3.620 m.kr. í lok mars. Þá hefur félagið frestað arðgreiðslu og gert ráðstafanir til að tryggja enn frekar aðgengi að lausu fé m.a. með heimild til frestun afborgana af bankalánum og aðgangi að nýjum lánalínum, ef á þarf að halda,“ segir í tilkynningu Reita.

Stöðugt sé unnið að því að endurmeta stöðuna. „Það er mat Reita að einkaneysla á innanlandsmarkaði taki við sér eftir því sem ferða- og samkomutakmörkunum verður aflétt. Hins vegar verði áhrifin langvinnari í starfsemi tengdri komu erlendra ferðamanna. Félagið ætlar að þeim leigutökum fækki á næstunni sem þurfa á fyrirgreiðslu að halda og jafnframt að þegar tilkynntar aðgerðir hins opinbera við atvinnulífið hjálpi smærri og meðalstórum fyrirtækjum.

Allt að einu er reiknað með að frestun leigugreiðslna aukist á meðan áhrifa faraldursins gætir, sem og umfang tapaðra tekna. Félagið vinnur að áætlunum miðað við mismunandi sviðsmyndir um það hversu langvinn og djúptæk áhrif faraldursins verða á ferðaþjónustuna og mótun viðbragða eftir því.

Taki ferðaþjónustan í heiminum við sér innan árs ætla stjórnendur að áhrif stöðvunarinnar á lausafjárstöðu félagsins kalli ekki sérstaklega á frekari ráðstafanir en þegar er fyrirséð. Er þá horft til sjóðstöðu félagsins í dag og aðgengi félagsins að frekara fjármagni,“ segir í tilkynningunni.

Flokkun tekna Reita í apríl eftir tegundum viðskiptavina:

  • Matur og lyf 18%
  • Verslun, veitingar og þjónusta  - áhersla á heimamenn 16%
  • Skrifstofur og iðnaður 16%
  • Opinberir aðilar 15%
  • Hótel og gististaðir 15%
  • Verslun með fatnað, skó og fylgihluti 7%
  • Fjármálaþjónusta og fjarskipti 5%
  • Heilsa, líkamsrækt og afþreying 4%
  • Verslun, veitingar og þjónusta  - áhersla á ferðamenn 3%