Hlutfall langtímaleiguíbúða af heildarfjölda íbúða er 7,5% og hefur lækkað um nær þriðjung frá árinu 2015. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Leigumarkaðurinn er virkastur á Suðurnesjum en óvirkastur á Vestfjörðum og Norðurlandi Vestra. Einnig er óhagkvæmast að leigja á Vestfjörðum en hagkvæmast í Reykjavík, ef leiguverð er borið saman við kaupverð sams konar íbúða á sama svæði.

Fyrstu íbúðakaupum hefur almennt fjölgað meira en annars konar íbúðakaupum allt frá árinu 2009. Á árinu 2009 voru fyrstu íbúðakaup um 7,5% allra íbúðakaupa en á öðrum ársfjórðungi þessa árs var það hlutfall komið upp í 27,7%, sem er það hæsta síðan mælingar hófust árið 2008.

Þrýstingur á húsnæðismarkaðinum eykst á landsbyggðinni en minnkar á höfuðborgarsvæðinu

Á meðan hækkun á ásettu verði íbúða hefur minnkað og meðalsölutíminn haldist stöðugur á höfuðborgarsvæðinu má greina hraðari verðhækkun auk styttri meðalsölutíma á landsbyggðinni. Raunar hefur meðalsölutíminn nánast verið sá sami á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum þess í tvö ár, en munurinn milli þeirra svæða og annarra á landinu hefur minnkað á undanförnum mánuðum.

Toppnum náð í byggingarstarfsemi

Dregið hefur úr innflutningi byggingarhráefna auk þess sem erlendu starfsfólki í byggingariðnaði hefur fækkað töluvert frá síðasta ári. Líklegt er að toppnum sé náð í íbúðaruppbyggingu í bili, þótt starfsemin mælist enn mikil miðað við síðasta áratuginn.