Nemendur á skólastigum fyrir ofan grunnskóla á Íslandi, voru 41.598 haustið 2017, sem er svipaður fjöldi og árið áður. Nemendum á framhaldsskólastigi fækkaði, en nemendum sem sóttu nám á viðbótarstigi og doktorsstigi fjölgaði talsvert. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Hagstofu Íslands.

Á framhaldsskólastigi voru 22.530 nemendur skráðir í nám og fækkaði þeim um 0,3% frá 2016. Karlar voru í naumum meirihluta nemenda, eða 51,3%. Á háskólastigi í heild voru 17.892 nemendur, sem er fækkun um 0,8% frá 2016. Af þessum nemendum voru 63,5% konur. Nemendum á doktorsstigi fjölgaði mikið, eða um tæp 36% frá 2016 og voru 637 talsins haustið 2017. Svipaða sögu er að segja um þá sem stunduðu nám á viðbótarstigi en þeim fjölgaði um rúm 20% og voru 1.176 haustið 2017.

Þriðji hver nemandi í doktorsnámi hefur erlent ríkisfang

Haustið 2017 var um þriðjungur doktorsnema með erlent ríkisfang, samtals 213 nemendur. Fjöldi erlendra doktorsnema hefur tvöfaldast frá árinu 2011 þegar þeir voru 108 talsins. Íslenskir doktorsnemar voru 424 en 114 voru frá öðrum Evrópulöndum en Norðurlöndunum, 44 frá Asíu, 26 frá Ameríku og 18 frá Norðurlöndunum. Doktorsnemum fjölgaði á öllum almennum námssviðum frá fyrra ári.

Á viðbótarstigi fjölgaði nemum aðallega í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala.

Háskólanemum fækkar í raunvísindum og verkfræðigreinum

Flestir háskóla- og doktorsnemar sóttu nám á sviði félagsvísinda, viðskipta og lögfræði haustið 2017, eða 6.207 nemendur. Næstflestir nemendur voru á sviði heilbrigðis og velferðar, eða 2.657 talsins. Fjöldi nemenda á sviði raunvísinda, stærðfræði og tölvunarfræði náði hámarki árið 2013 þegar 2.248 nemendur stunduðu nám á því sviði en nemendum hefur fækkað og voru 2.057 haustið 2017. Nemendum á sviði verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerðar hefur einnig fækkað frá árinu 2013, úr 1.797 í 1.634. Fækkunin er þó aðallega á meðal karla en þeim hefur fækkað um tæp 15% frá árinu 2013 og voru 1.021 haustið 2017. Konum á sviðinu hefur aftur á móti fjölgað um tæp 3% frá 2013 og voru þær 613 haustið 2017.

Á háskóla- og doktorsstigi voru konur fleiri en karlar á öllum sviðum menntunar nema á sviði raunvísinda, stærðfræði og tölvunarfræði sem og í verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerð. Hlutfallslega voru konur flestar á sviði heilbrigðis og velferðar en þar voru þær 84,6% nemenda. Á sviði verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerðar voru konur hlutfallslega fæstar eða 37,5% nemenda.