Heildarvelta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu frá 13. til 19. febrúar sl. nam 3.073 milljónum króna. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Alls voru gerðir 65 samningar um eignir í fjölbýli, 16 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Meðalupphæð á hvern samning nam 35,3 milljónum króna.

Heildarveltan var nokkuð undir meðaltali síðustu tólf vikna, sem nemur 4.330 milljónum króna.