Velta á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland í gær nam 2,9 milljörðum króna, en langmest velta var með bréf Icelandair, eða fyrr 1,5 milljarð.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,24% og vóg þar þyngst 6,06% lækkun bréf Icelandair. Þá lækkaði gengi Össurar um 3,11% og TM um 1,62%.

Aftur á móti hækkaði gengi bréfa Nýhera um 4,07% í litlum viðskiptum og voru það einu hlutabréfin sem hækkuðu í verði í gær.